Framlög úr Jöfnunarsjóði til reksturs grunnskóla – Rúmlega milljarður til Suðurnesja
Ráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar um áætlaða heildarúthlutun almennra jöfnunarframlaga til reksturs grunnskóla á árinu 2017. Sveitarfélögin á Suðurnesjum fá úthlutað 961 milljónum króna úr sjóðnum til reksturs grunnskóla.
Áætlunin verður endurskoðuð í febrúar 2017 á grundvelli íbúafjölda 1. janúar 2017, endanlegs álagningarstofns útsvars vegna ársins 2015 og endurskoðunar á áætluðum útsvarstekjum sveitarfélaga á árinu 2016.
Framlögin koma til greiðslu mánaðarlega og taka mið af innkomnum tekjum sjóðsins af 0,77% hlutdeild hans í staðgreiðsluskilum viðkomandi mánaðar.
Skiptinguna á milli sveitarfélaga á Suðurnesjum má sjá hér fyrir neðan. Í Reykjanesbæ eru starfræktir sex grunnskólar en einn í hverju hinna.
Reykjanesbær 525.768.317
Grindavíkurkaupstaður 98.402.502
Sandgerðisbær 92.460.003
Sveitarfélagið Garður 99.927.126
Sveitarfélagið Vogar 102.332.616
Þá hefur ráðherra einnig samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar um áætlaða úthlutun framlaga vegna sérþarfa fatlaðra nemenda á árinu 2017. Þessi framlög eru greidd mánaðarlega í jöfnum greiðslum og er skiptingin á milli sveitarfélaga á Suðurnesjum eftirfarandi.
Reykjanesbær 61.400.000
Grindavíkurbær 13.400.000
Sandgerðisbær 9.450.000
Sveitarfélagið Garður 14.750.000
Sveitarfélagið Vogar 6.750.000
Heildarframlög úr Jöfnunarsjóði til sveitarfélagana á Suðurnesjum vegna grunnskóla fyrir árið 2017 eru því rúmlega milljarður króna.