sudurnes.net
Framlög úr Jöfnunarsjóði til reksturs grunnskóla - Rúmlega milljarður til Suðurnesja - Local Sudurnes
Ráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar um áætlaða heildarúthlutun almennra jöfnunarframlaga til reksturs grunnskóla á árinu 2017. Sveitarfélögin á Suðurnesjum fá úthlutað 961 milljónum króna úr sjóðnum til reksturs grunnskóla. Áætlunin verður endurskoðuð í febrúar 2017 á grundvelli íbúafjölda 1. janúar 2017, endanlegs álagningarstofns útsvars vegna ársins 2015 og endurskoðunar á áætluðum útsvarstekjum sveitarfélaga á árinu 2016. Framlögin koma til greiðslu mánaðarlega og taka mið af innkomnum tekjum sjóðsins af 0,77% hlutdeild hans í staðgreiðsluskilum viðkomandi mánaðar. Skiptinguna á milli sveitarfélaga á Suðurnesjum má sjá hér fyrir neðan. Í Reykjanesbæ eru starfræktir sex grunnskólar en einn í hverju hinna. Reykjanesbær 525.768.317 Grindavíkurkaupstaður 98.402.502 Sandgerðisbær 92.460.003 Sveitarfélagið Garður 99.927.126 Sveitarfélagið Vogar 102.332.616 Þá hefur ráðherra einnig samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar um áætlaða úthlutun framlaga vegna sérþarfa fatlaðra nemenda á árinu 2017. Þessi framlög eru greidd mánaðarlega í jöfnum greiðslum og er skiptingin á milli sveitarfélaga á Suðurnesjum eftirfarandi. Reykjanesbær 61.400.000 Grindavíkurbær 13.400.000 Sandgerðisbær 9.450.000 Sveitarfélagið Garður 14.750.000 Sveitarfélagið Vogar 6.750.000 Heildarframlög úr Jöfnunarsjóði til sveitarfélagana á Suðurnesjum vegna grunnskóla fyrir árið 2017 eru því rúmlega milljarður króna. Meira frá SuðurnesjumHugbúnaðar- og gagnavörslufyrirtæki á Ásbrú rambar á barmi gjaldþrotsZeto fær styrk úr Frumkvöðlasjóði ÍslandsbankaMánaðarlaun kjörinna fulltrúa í Garði hækka um 26% – Taka mið af [...]