Nýjast á Local Suðurnes

Jarðskjálftahrina við Fagradalsfjall – Hér eru mögulegar sviðsmyndir

Jarðskjálftahrina hófst við Fagradalsfjall 19. júlí um kl 1:30. Yfir 1700 jarðskjálftar hafa mælst á svæðinu eftir það. Stærsti skjálftinn varð í gærkvöldi kl 23:36 og var hann 5,1 að stærð. Fjölmargir eftirskjálftar hafa mælst í kjölfarið, stærstu eftirskjálftarnir voru 4,6 að stærð kl 05:46 og 5,0 að stærð kl 06:23 í dag, þann 20. júlí. Að auki hafa 22 jarðskjálftar stærri en 3 að stærð mælst eftir miðnætti. Tilkynningar hafa borist um að stærstu skjálftarnir hafi fundist frá Akranesi í vestri allt að Vík í austri. Jarðkjálftahrinan er enn yfirstandandi.

Jarðskjálftavirkni er vel þekkt í námunda við Fagradalsfjall og hrinur hafa orðið þar áður. Fimm marktækar hrinur hafa mælst á svæðinu síðan 1991. Hrinur á stærð við þá sem er nú yfirstandandi (bæði hvað varðar stærð og fjölda skjálfta) eru ekki algengar. Síðast var virkni af svipaðri stærðargráðu og nú þann 16. september 1973, en í þeirri hrinu mældust fimm jarðskjálftar stærri en 4 að stærð og einn stærri en 5.

Jarðskjálftavirknin nú virðist eiga sér stað á norður-suður sprungum á brotabelti Reykjanesskaga. Það bendir til þess að virknin sé vegna flekahreyfinga, og hún á sér stað núna líklega af völdum spennubreytinga vegna kvikuinnskotsvirkninnar á Reykjanesskaga sem hófst í janúar á þessu ári. Þar sem nokkur innskot hafa orðið á skaganum síðan þá, er ekki hægt að útiloka að núverandi hrina sé vegna innskotsvirkni undir Fagradalsfjalli.

Saga jarðskjálftavirkninnar á Reykjanesskaganum sýnir að snarpir skjálftar hafa orðið í tengslum við meiriháttar jarðskjálftahrinur. Því er ekki hægt að útiloka að stærri jarðskjálftar fylgi hrinunni nú og talið er að þeir stærstu gætu orðið u.þ.b. 5.5 – 6 að stærð. Slíkir skjálftar geta valdið tjóni á höfuðborgarsvæðinu.

Ef jarðskjálftavirkni er tengd kvikuinnskoti eru sömu hættur og við Svartsengi/Grindavík sem áður hefur verið sagt frá, þ.e. möguleiki á sprungugosi með gostrókum, hraunrennsli og t.d. gasstreymi. Eins er möguleiki á meira grjóthruni á svæðinu, segir í tilkynningu frá Veðurstofinni.

Mögulegar sviðsmyndir:

1) Það dregur úr jarðskjálftavirkni næstu daga eða vikur.

2) Hrinan mun færast í aukana með stærri skjálftum, allt að 5.5-6 að stærð.

3) Kvikuinnskot verður í nágrenni við Fagradalsfjall:

i) Leiðir til flæðigoss

ii) Kvikuinnskotsvirkni minnkar og kvika storknar

Núverandi virkni á Reykjanesskaga er kaflaskipt og er erfitt að spá fyrir um nákvæma framvindu. Von er á nýjum gögnum síðar í vikunni sem geta varpað skýrara ljósi á ástæður þessarar hrinu.