Nýjast á Local Suðurnes

Enn tekist á um bókasafnsflutninga – Óskar eftir rökstuðningi frá bæjarstjóra

Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, hefur sem kunnugt er lýst sig vanhæfan varðandi fyrirhugaðan flutning bókasafns bæjarins í Hljómahöll þar sem Rokksafn Íslands og Tónlistarskóli Reykjanesbæjar eru til húsa, meðal annars þar sem hann starfaði á árum áður sem skólastjóri tónlistarskólans.

Þetta finnst bæjarfulltrúa Umbótar, Margréti Þórarinsdóttur, vera sérstök ákvörðun hjá bæjarstjóranum, þar sem bæjarstjóri þurfi í starfi sínu að taka erfiðar ákvarðanir. Í bókun sem Margrét lagði fram á fundi bæjarstjórnar óskaði hún eftir rökstuðningi frá bæjarstjóra varðandi ákvörðunina.

Bókun Margrétar:

„Mér finnst nokkuð sérstakt að bæjarstjóri skuli lýsa sig vanhæfan til frekari vinnu við undirbúning verkefnisins. Það blasir við að bæjarstjóri er ósáttur við þær breytingar sem búið er að samþykkja að verði gerðar á Rokksafninu og flutningi bókasafnsins. Ég hefði nú haldið að það teldist ekki vera vanhæfi þó menn væru ósammála.

Ég spyr því háttvirtan bæjarstjóra sem er ráðinn embættismaður, hyggst hann lýsa sig vanhæfan í öðrum málum sem meirihlutinn felur honum að framkvæma og hann er ósammála hugmyndafræðilega?

Það eitt að vera ósammála er ekki grundvöllur fyrir ráðinn embættismann að lýsa sig vanhæfan. Stundum þarf að taka erfiðar ákvarðanir og þær lúta oftar en ekki að því að draga úr kostnaði og skera niður útgjöld. Kannski á bæjarstjóri erfitt með að taka erfiðar ákvarðanir og vill komast hjá því að vera bendlaður við ákvarðanatöku sem er erfið, en engu að síður nauðsynleg. En þetta er nú bara hluti af því að vera bæjarstjóri.

Í ljósi framgreinds óskar Umbót eftir því að bæjarstjóri svari eftirfarandi: Hvernig rökstyður bæjarstjóri ákvörðun sína um að hann sé vanhæfur með tilliti til stjórnsýslulaga og sveitarstjórnarlaga? Nú er langt um liðið síðan bæjarstjóri var skólastjóri Tónlistarskólans og ekki er hægt að sjá hvernig það starf lýtur að þessari ákvörðun, þannig það er nú varla gild ástæða.

Bæjarstjóri veit nákvæmlega hvers vegna það er nauðsynlegt að færa bókasafnið. Ný staðsetning í húsnæði Hljómahallar er sú besta í stöðunni, auk þess sem hún er mjög miðsvæðis í bæjarfélaginu. Þetta snýst allt um kostnað. Nýtt bókasafn kostar margfalt það sem hér er lagt upp með.“