Nýjast á Local Suðurnes

Milljón króna handfærarúllum stolið úr bát

Lögreglan á Suðurnesjum hefur til rannsóknar mál sem varðar þjófnað á tveimur handfærarúllum úr bát sem lá við smábátabryggjuna í Sandgerði.

Klippt hafði verið á rafmagnskapal sem lá að rúllunum og þær fjarlægðar. Áætlað er að hvor þeirra kosti um 500 þúsund krónur.