Nýjast á Local Suðurnes

Loka leiðinni um Höskuldarvelli – Fólk forðist að vera á svæðinu

Lögregla hefur lokað leiðinni um Höskuldarvelli og verður vegurinn lokaður á meðan mat er lagt á stöðuna vegna eldgossins. Þá biðlar lögregla til fólks að fara ekki á svæðið fyrr en búið sé að tryggja öryggi.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu sem sjá má hér fyrir neðan:

Gos er hafið á Reykjanesi. Staðsetning gossins er austan Litla-Hrúts. Vísindafólk er á leiðinni á staðinn með þyrlu landhelgisgæslunnar til að leggja mat á stöðuna.
Fólk er beðið um að fara með gát og forðast að vera á þessu svæði.
Leiðinni um Höskuldarvelli verður lokuð á meðan mat er lagt á stöðuna. Ekki leggja af stað fyrr en búið er að tryggja að svæðið sé öruggt.