Guðrún sér um lýðheilsumálin í Reykjanesbæ

Gengið hefur verið frá ráðningu Guðrúnar Magnúsdóttir í starf lýðheilsufræðings á velferðarsviði Reykjanesbæjar. Guðrún er hjúkrunarfræðingur að mennt, með meistaragráðu í lýðheilsuvísindum frá Háskóla Íslands með áherslu á stjórnun og stefnumótun í heilbrigðisvísindum.
Undanfarin ár hefur Guðrún starfað sem hjúkrunarfræðingur á bráðamóttöku barna og sem hjúkrunar- og lýðheilsufræðingur í Heilsuskóla barnaspítalans, ásamt störfum á geðsviði Landspítalans.
Guðrún mun hefja störf hjá Reykjanesbæ á haustmánuðum.