Nýjast á Local Suðurnes

Landhelgisgæslan aðstoðaði við slökkvistarf – Myndir!

Síðdegis á laugardag óskaði slökkviliðsstjórinn í Grindavík eftir aðstoð Landhelgisgæslunnar vegna elds sem logaði í djúpum mosa austan Djúpavatns við Lækjarvelli. Áhöfnin á TF-LIF, þyrlu Landhelgisgæslunnar, var send til að aðstoða við slökkvistarf og hefta útbreiðslu eldsins.

Slökkvilið Grindavíkur barðist við eldinn en erfiðlega reyndist að koma slökkvibílum að vettvangi. Áhöfnin á þyrlunni lenti við Kleifarvatn þar sem slökkviskjólan var gerð klár og hengd undir vélina. Að því búnu var hún fyllt af vatni og flogið með hana sjö ferðir að eldinum. Greiðlega gekk að hefta útbreiðsluna og slökkva eldinn.

Í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni segir að greiðlega hafi gengið að hefta útbreiðslu eldsins og að samskipti áhafnar, slökkviliðsmanna og stjórnstöðvar Landhelgisgæslunnar hafi gengið afar vel fyrir sig og lauk aðgerðum þyrlunnar á tíunda tímanum um kvöldið.