sudurnes.net
Landhelgisgæslan aðstoðaði við slökkvistarf - Myndir! - Local Sudurnes
Síðdegis á laugardag óskaði slökkviliðsstjórinn í Grindavík eftir aðstoð Landhelgisgæslunnar vegna elds sem logaði í djúpum mosa austan Djúpavatns við Lækjarvelli. Áhöfnin á TF-LIF, þyrlu Landhelgisgæslunnar, var send til að aðstoða við slökkvistarf og hefta útbreiðslu eldsins. Slökkvilið Grindavíkur barðist við eldinn en erfiðlega reyndist að koma slökkvibílum að vettvangi. Áhöfnin á þyrlunni lenti við Kleifarvatn þar sem slökkviskjólan var gerð klár og hengd undir vélina. Að því búnu var hún fyllt af vatni og flogið með hana sjö ferðir að eldinum. Greiðlega gekk að hefta útbreiðsluna og slökkva eldinn. Í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni segir að greiðlega hafi gengið að hefta útbreiðslu eldsins og að samskipti áhafnar, slökkviliðsmanna og stjórnstöðvar Landhelgisgæslunnar hafi gengið afar vel fyrir sig og lauk aðgerðum þyrlunnar á tíunda tímanum um kvöldið. Meira frá SuðurnesjumUm 700 kíló af rusli fargað eftir árlegan strandhreinsidagBíllinn notaður og fullur af rusli eftir geymslu hjá bílastæðaþjónustuRáðist á strætóbílstjóra – Lögregla óskar eftir því að vitni gefi sig framGlæfraakstur litinn alvarlegum augum – Bílstjórinn áminnturLeikmenn Tindastóls borguðu sig inn á leik í Grindavík: “Á landsvísu erum við ein fjölskylda”Bílastæðafyrirtæki býður félagasamtökum að nýta starfsfólk sitt til góðra verkaNóg um að vera á nýrri Fésbókarsíðu Skessunnar í hellinumTorfærukeppni stöðvuð vegna slyssBræða [...]