Nýjast á Local Suðurnes

Þrír handteknir með eiturlyf og vopn

Lögreglan á Suðurnesjum handtók þrjá einstaklinga eftir húsleit í húsnæði í umdæminu um síðustu helgi.

Í tilkynningu frá lögreglunni segir að lögreglumenn hafi fundið þrjá poka af meintu kókaíni, sveðju og þrjá hnífa.

Í tilkynningunni kemur einnig fram að húsráðandi hafi játað eign sína á efnum og vopnum afsalað þeim til lögreglu.

Þá minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005 en í hann má hringja til að koma á framfæri nafnlausum upplýsingum um fíkniefnamál.