Nýjast á Local Suðurnes

Ekkert Njarðvíkurbingó en hlaðið í lukkuleik

Samkomutakmarkanir gera körfuknattleiksdeild Njarðvíkur erfitt fyrir um þessar mundir, en deildin hafði skipulagt eina stærstu fjáröflunarsamkomu ársins, bingó, um áramótin. Af því verður ekki, en deildin býður Njarðvíkingum upp á lukkuleik í staðin hvar verðlaun eru ekki af verri endanum.

Lesa má allt um hvernig þetta virkar hér fyrir neðan:

Heil og sæl elskulega Hjörð.

Eins og allir hafa orðið vör við þá er faraldurinn að gera öllum lífið leitt og allir stórir viðburðir hafa verið frestaðir og með því er okkar stærsta fjáröflun BINGÓ EKKI á dagskrá þann 30.des.

Þetta er svakalegur skellur fyrir deildina að missa þessa fjáröflun og fer fjárhagsáætlun í mola við að missa þetta.

Við í stjórn erum að gera okkar besta til að halda úti tveim góðum liðum í efstu deild og er það kostnaðarsamt.
Því BIÐLUM við til ykkar að standa þétt við bakið á okkur á þessum tímum

Í stað BINGÓ þá verðum við með jóla/áramótalukkuleik þar sem flottir vinningar verða dregnir út.
Meðal vinninga er Iphone 13

Við þurfum jólakraftaverk frá Hjörðinni okkar að taka vel í þennan áramótaleik

Við setjum á stað keðju þar sem allir sem leggja inn á deildina vissa upphæð og hvetja aðra 3 í leiðinni að taka við áskorunni.

Eftir hvað þú velur fáið þið nafn ykkar í pott og eins og þið sjáið fáið þið góðan möguleika á vinningi ef þið hendið í sigurkörfu (10xnafn)

Vítaskot = 3000kr (1xnafn)
Tveggjastiga = 5000kr (3xnafn)
Þriggjastiga = 7000kr (5xnafn)
Sigurkarfa = 10.000kr (10xnafn)

Þegar þið hafið lagt inn þá setjið þið nöfn þeirra sem þið veljið í comment hér undir þennan póst.

Það er geggjað gaman að skora sigurkörfu og með henni áttu flottan séns að vinna flotta vinninga

Banka info deildarinar

0147-26-410,
kt.650182-0229.