Nýjast á Local Suðurnes

Heilsu- og forvarnarvika í október – Hvetja fyrirtæki og stofnanir til að taka þátt

Vikuna 3 – 9. október næstkomandi verður haldin Heilsu- og forvarnarvika í Reykjanesbæ. Þetta er í níunda skiptið sem heilsu- og forvarnarvikan er haldin undir kjörorðinu Samvinna-Þátttaka-Árangur. Allar stofnanir Reykjanesbæjar taka þátt í verkefninu og vonast til að sem flest fyrirtæki, stofnanir, félagasamtök og íþrótta-og tómstundafélög í Reykjanesbæ sjái hag sinn í þátttöku verkefnisins.

Skila þarf upplýsingum/dagskrá fyrir 21. september nk. til að vera með í viðburðardagatalinu.

Markmiðið með heilsu- og forvarnarvikunni er að draga úr þeim áhættuþáttum sem einstaklingar geta staðið frammi fyrir á lífsleiðinni og hlúa að verndandi þáttum með þátttöku allra bæjarbúa.

Fræðslu- og Velferðarsvið Reykjanesbæjar vonast til þess að fyrirtæki og stofnanir í bænum taki virkan þátt í verkefninu með því að bjóða bæjarbúum upp á eitthvað heilsutengt þessa vikuna. Markmiðið er að heilsu-og forvarnarvikan sé fjölbreytt og höfði til sem flestra.

Ætlunin er að útbúa viðburðadagatal yfir þau tilboð og verkefni sem verða í gangi í heilsu- og forvarnarvikunni og verða ýmsar leiðir nýttar við að auglýsa verkefnið sjálft. Frekari upplýsingar eru veittar í síma 898-1394 eða á netfangið heilsuvika@reykjanesbaer.is.