Nýjast á Local Suðurnes

Funda með íbúum um Ljósanótt

Ljósanótt verður 20 ára næsta haust og í tilefni þeirra tímamóta er gott að líta yfir farinn veg með framtíðina í huga. Menningarráð hefur því ákveðið að leita til bæjarbúa með því að bjóða þeim til spjallfundar með þjóðfundasniði um hátíðina og framkvæmd hennar í Stofunni í Duus Safnahúsum þriðjudaginn 29.janúar klukkan 19.30.

Ertu með hugmynd að viðburði, tónleikum, afþreyingu eða einhverju öðru skemmtilegu á Ljósanótt? Eða langar bara að taka þátt í umræðum? Þá er um að gera að mæta á þriðjudag og taka þátt í íbúafundinum!