Nýjast á Local Suðurnes

Safna undirskriftum gegn flutningi bókasafns í Hljómahöll

Bæjarstjórn Reykjanesbæjar er hvött til að falla frá ákvörðun sinni um að flytja Bókasafn Reykjanesbæjar í Hljómahöll og þrengja þannig að starfsemi Tónlistarskóla Reykjanesbæjar, Rokksafns Íslands og Hljómahallar með undirskriftarlista á vef Ísland.is.

Undirskriftalistinn var nýlega settur í loftið og hafa þegar þetta er ritað rétt tæplega 700 manns skrifað undir.