Nýjast á Local Suðurnes

Tekinn á 175 kílómetra hraða – Staðgreiddi sektina og fékk afslátt

Er­lend­ur ferðamaður á leiðinni á Kefla­vík­ur­flug­völl var stöðvaður af lög­reglu fyr­ir of hraðan akst­ur. Hann var tek­inn á 175 kíló­metra hraða á klukku­stund.

Sam­kvæmt upp­lýs­ing­um frá lög­regl­unni á Suður­nesj­um var er­lendi ferðamaður­inn á leið í flug. Hann fékk sekt upp á 140 þúsund krón­ur en staðgreiddi og fékk því 20 þúsund króna af­slátt. Ferðamaður­inn ók BMW-bíla­leigu­bíl.