Nýjast á Local Suðurnes

Stálu dósum að andvirði allt að 50 þúsund krónum

Tilkynnt var nýverið til lögreglunnar á Suðurnesjum um þjófnað á dósum úr
bílakerru á lokuðu byggingarsvæði.

Eigandinn, sem var staddur úti á landi,
sá í öryggismyndavélakerfi sem beintengt er við farsíma hans hvar tveir menn
komu með barnakerru, fylltu hana af dósum og höfðu sig síðan á brott. Þetta
léku þeir ítrekað. Miklu magni af dósum og flöskum hafði verið safnað á
kerruna á löngum tíma og er talið að verðmæti þeirra nemi allt að 40 – 50
þúsund krónum þegar hún er orðin full.

Lögregla leitar mannanna.