Keyptu fölsuð skilríki og skelltu sér í Íslandsferð – Fengu gistingu hjá lögreglu
![passport-315266_1280](https://i0.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2016/01/passport-315266_1280.jpg?resize=620%2C264)
Tveir einstaklingar voru teknir með fölsuð skilríki í Flugstöð Leifs Eiríkssonar í vikunni. Um var að ræða breytifölsuð ítölsk kennivottorð.
Mennirnir, sem ferðuðust saman, kváðust hafa keypt skilríkin á 700 evrur hvort stykki. Lögreglan á Suðurnesjum handtók þá og voru þeir færðir á lögreglustöð til skýrslutöku. Málin eru komin í hefðbundið ferli.