Nýjast á Local Suðurnes

Umsókn LÚX um leyfi til skemmtanahalds hafnað

Bæjarráð Reykjanesbæjar leggst því alfarið gegn því að skemmtistaðnum LÚX við Hafnargötu verði veitt tækifærisleyfi til skemmtanahalds.

Fram kemur í fundargerð að vegna sögu eftirlitsaðila viðburðar, samkvæmt umsögn, telur bæjarráð það ámælisvert að veita tækifærisleyfi til viðkomandi.

Þá segir að bæta þurfi eftirlit við viðburði staðarins, endurbæta húsnæði og umhverfi og ekki síst gæta betur að aldurstakmarki gesta. Sífelldar kvartanir nágranna vegna umgengni og hávaða síðustu mánuði bæta ekki málsvörn viðkomandi eftirlitsaðila.