Nýjast á Local Suðurnes

ATP Iceland hefst á Ásbrú á fimmtudag – Sjáðu dagskrána hér

All tomorrow´s parties, ATP Iceland sem haldin er árlega á Ásbrú hefst á fimmtudaginn og var endanleg dagskrá hátíðarinnar kynnt í dag. Fjöldinn allur af listamönnum mun koma fram á hátíðinni í ár, þar á meðal mun hin sögufræga rappsveit Public Enemy troða upp sem og Iggy Pop. Dagskrá hátíðarinnar í heild sinni er að finna neðst í fréttinni.

Iggy Pop mun troða upp á ATP Iceland

Iggy Pop mun troða upp á ATP Iceland

 

Að venju er vegleg kvimyndadagskrá í Andrews Theater og er hún sett saman af hljómsveitinni Mogwai að þessu sinni. Dagskráin sem sveitin setti saman fyrir ATP er margbreytileg og ættu flestir að finna eitthvað við sitt hæfi, en til að mynda munu kvikmyndasýningar státa af American Movie, Don’t Look Back, The Exorcist, Rollerball, Nightbreed Directors Cut, There Will Be Blood og Silent Running.

Að auki verður óður til hjólabretta sunginn með myndum á borð við Propeller (Vans hjólabrettamynd leikstýrt af Greg Hunt) og myndir þeirra Buddy Nichols og Rick Charnoski; Fruit of the Vine, Tent City, Northwest, Deathbowl to Downtown og Blood Shed.

Tónleikadagskrá ATP:

FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ

ATLANTIC STUDIOS
Run the Jewels 1:30am – 2:30am
Belle & Sebastian 11:45pm – 1:00am
Iggy Pop 10:00pm – 11:15pm
Public Enemy 8:15pm – 9:30pm
The Bug 6:45pm – 9:30pm
Deafheaven 5:20pm – 6:20pm
Chelsea Wolfe 3:55pm – 4:55pm
Stafrænn Hákon 2:45pm – 3:30pm

ANDREWS THEATRE
Mr Silla 12:45am – 1:30am
Vision Fortune 11:15pm – 12:15am
Kippi Kaninus 9:45pm – 10:30pm
Grisalaplisa 8:15pm – 9:00pm
Tall Firs: 6:45pm – 7:30pm

THE OFFICERS CLUB
DJ Styrmir Dansson 12:00am – 2.30am
ATP DJ’s 2.30am – 4:30am

FÖSTUDAGUR 3. JÚLÍ

ATLANTIC STUDIOS
The Field 2:30am – 3:30am
Godspeed You! Black Emperor 11:30pm – 2:00am
Drive Like Jehu 9:45pm – 10:45pm
Mudhoney 8:15pm – 9:15pm
Clipping. 7:00pm – 7:45pm
Iceage 5:45pm – 6:30pm
Bardo Pond 4:30pm – 5:15pm
White Hills 3:15pm – 4:00pm
Oyama 2:00pm – 2:45pm

ANDREWS THEATRE – LISTRÆNIR STJÓRNENDUR: BEDROOM COMMUNITY
Daniel Bjarnason 11:15pm – 12:15am
Valgeir Sigurdsson with Liam Byrne 9:30pm – 10:30pm
JDFR 8:30pm – 9:00pm
Ceasetone 6:45pm – 7:30pm

THE OFFICERS CLUB
DJ John Brainlove 12:00am – 2.30am
ATP & Youngshusband DJ’s 2.30am – 4:30am

LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ

ATLANTIC STUDIOS
Younghusband 2:00pm – 2:45pm
Ought 3:15pm – 4:00pm
HAM 4:30pm – 5:15pm
Lightning Bolt 5:45pm – 6:45pm
Loop 7:30pm – 8:30pm
Swans 9:00pm – 11:30pm
Ghostigital 12:00am – 1:00am
Kiasmos 1:30am – 2:45am
ANDREWS THEATRE – LISTRÆNIR SJTÓRNENDUR: RÁS 2
Caterpillarmen 4:00pm – 4:45pm
Börn 5:15pm – 6:00pm
Xylouris White 6:45pm – 7:30pm
Pink Street Boys 8:15pm – 9:15pm
Valdimar 9:45pm – 10:30pm
Rythmatic 11:15pm – 12:15am
THE OFFICERS CLUB
DJ Óli Dóri 12:00am – 2.30am
DJ Barry Hogan 2.30am – 4:30am