Nýjast á Local Suðurnes

48 ungmenni tóku þátt í vel lukkuðu skákmóti

Fjölmennt var á jólamóti Krakkaskák og Samsuð (samtök félagsmiðstöðva á Suðurnesjum) sem haldið var í Holtaskóla sunnudaginn 13. desember síðastliðinn. Alls tóku 48 ungmenni þátt. Keppt var í fjórum flokkum 7 – 10 ára og 11 til 16 ára, bæði drengja og stúlknaflokki.

Helstu úrslit urðu sem hér segir;

Emilía Siggeirsdóttir sigraði í peðaflokki.
Birta Eiríksdóttir yngriflokkur stúlkna.
Nadía Arthúrsdóttir eldri flokkur stúlkna.
Sólon Siguringason yngri flokkur drengja.
Ólafur Þór Gunnarsson eldri flokkur drengja.

Styrktaraðilar mótsins voru Nettó og Skáksamband Íslands, skáksambandið gaf vönduð töfl og Nettó gaf mikið af glæsilegum vörum.

krakkaskak2

48 ungmenni tóku þátt í mótinu

krakkaskak3

Einbeiningin skein úr hverju andliti enda metnaðarfullt ungt fólk á ferð

krakkaskak4

Verðlaunin voru ekki af verri endanum