Heimsmeistari unglinga með skáknámskeið í Vogum
Námskeiðið er frítt fyrir krakka í júní og ágúst
![Skák](https://i2.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2015/06/chess-775346_1280.jpg?resize=620%2C264)
Birkir Karl Sigurðsson vera með skáknámskeið fyrir alla krakka á grunnskólaaldri í Álfagerði í Vogum á þriðjudögum í júní og ágúst.
Námskeiðið kostar ekkert fyrir krakkana og verður á eftirtöldum tímum.
23. júní kl. 13:00 – 15:00
30. júní kl. 13:00 – 15:00
11. ágúst kl. 13:00 – 15:00
18. ágúst kl. 13:00 – 15:00
Birkir Karl er tvítugur menntaskólanemi og hefur haft mikinn áhuga á skák frá 7 ára aldri. Hann hefur ma. orðið heimsmeistari unglinga í skólaskák og nokkrum sinnum Íslandsmeistari. Birkir Karl nældi sér í skákkennararéttindi frá Alþjóðlega skáksambandinu FIDE á þessu ári.