Nýjast á Local Suðurnes

Báðust afsökunar á flugeldakasti

Nokkrir unglingar urðu á dögunum uppvísir að því að kasta flugeldi inn um bréfalúgu á íbúðarhúsnæði í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum, líkt og greint var frá á suðurned.net.Eldur kviknaði í mottu í anddyrinu í kjölfarið. Húsráðandi var sem betur fer snar í snúningum því hann braut mottuna saman yfir flugeldinn og kastaði henni út.

Lögreglumenn ræddu alvarlega við unglingana og aðstandendur þeirra. Báðu piltarnir húsráðendur síðan afsökunar en tilkynning um athæfi þeirra var send til barnaverndar.