Nýjast á Local Suðurnes

Opinn fundur um viðbragðs- og öryggisáætlanir í ferðaþjónustu

Miðvikudaginn 19. febrúar, kl. 13.00-14.30 verður boðið til kynningarfundar í Kvikunni í Grindavík um viðbragðs- og öryggisáælanir í ferðaþjónustu.

Samkvæmt lögum ber hverjum þeim sem hyggst framkvæma skipulagðar ferðir að hafa öryggisáætlanir fyrir sínar ferðir. En hvað með gististaði og aðra þjónustuaðila? Hvernig bregðumst við við?

Í ljósi aðstæðna sem hafa skapast vegna veðurs og óvissustigs almannavarna á svæðinu, er ekki úr vegi að skoða áætlanir viðbragðsaðila og hvað það er sem ferðaþjónustunan á Reykjanesi þarf að hafa í huga.

Á fundinn mæta góðir gestir sem fara yfir þessi mál, en það eru þau Rögnvaldur Guðmundsson, verkefnastjóri hjá Almannavörnum, Jónas Guðmundsson frá Savetravel og Snorri Valsson frá Ferðamálastofu.

Fundurinn er öllum opinn en mikilvægt er að skrá sig á fundinn á vef visitreykjanes.is