Nýjast á Local Suðurnes

Keflavíkurstúlkur ætla sér stóra hluti í 1. deildinni

Það er óhætt að að segja að nóg hafi verið að gera hjá nýjum formanni knattspyrnudeildar Keflavíkur, Jóni G. Benediktssyni, síðan hann tók við stjórninni í haust. Knattspyrnudeildin hefur endurnýjað samninga við hvern leikmanninn á fætur öðrum í karlaflokki og nú var komið að konunum.

Sjö leikmenn kvennaliðs Keflavíkur hafa skrifað undir leikmannasamninga við félagið.  Þetta eru leikmenn í meistaraflokki og 2. flokki kvenna og eru samningarnir allir til tveggja ára.  Gunnar Magnús Jónsson var ráðinn þjálfari kvennaliðsins í haust og er mikill hugur í honum og leikmannahópnum fyrir komandi leiktíð.  Keflavík mun leika í 1. deildinni næsta sumar eins og undanfarin ár en liðið lék síðast í efstu deild árið 2009.

Leikmennirnir sem skrifuðu undir samninga að þessu sinni eru þær Anita Lind Daníelsdóttir, Arndís Snjólaug Ingvarsdóttir, Eva Lind Daníelsdóttir, Kristrún Ýr Holm, Ólöf Stefánsdóttir, Sólveig Lind Magnúsdóttir og Una Margrét Einarsdóttir.