Áhersla lögð á fjölbreytt og skapandi nám í nýrri menntastefnu Reykjanesbæjar
![apple-256261_1280](https://i0.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2015/08/apple-256261_1280.jpg?resize=620%2C264)
Ný menntastefna Reykjanesbæjar hefur verið birt á vefsíðu sveitarfélagsins, en þar kemur fram að nýrri menntastefnu sé ætlað að vera heildstæð áætlun um það hvernig nám á öllum skólastigum, leikur, listir og íþróttir fléttast saman og stuðlar sameiginlega að því að undirbúa unga fólkið okkar sem best undir það að vera virkir þátttakendur í samfélagi 21. aldarinnar.
Í nýrri menntastefnu er lögð áhersla á aukna þátttöku unga fólksins sjálfs, öryggi í starfi og leik, læsi í víðum skilningi og merkingarbært, fjölbreytt og skapandi nám. Með áherslur nýrrar menntastefnu að leiðarljósi munum við byggja upp réttláta, hamingjusama og sjálfbæra framtíð fyrir börnin okkar í Reykjanesbæ.
Menntastefna Reykjanesbæjar – 2MB