Frönsk kona enn týnd – Ekki ákveðið hvort óskað verði eftir aðstoð björgunarsveita
Alþjóðadeild ríkislögreglustjóra er lögreglunni á Suðurnesjum innan handar vegna leitar að frönskum ferðamanni, Luise Soreda, sem lýst var eftir í dag. Lögreglunni á Suðurnesjum hefur borist fjöldi símtala frá fólki sem telur sig hafa séð Soreda á hinum ýmsu stöðum á landinu en að svo stöddu eru engar nákvæmar vísbendingar um hvar hún er niður komin.
Frá því er greint á vef mbl.is að hingað til hafi lögregla meðal annars farið yfir farþegalista flugfélaganna en ekki var talin ástæða til að lýsa eftir henni fyrr en í dag. Soreda kom til Íslands 5. júlí og sást hún síðast á öryggismyndavélum á Keflavíkurflugvelli við komuna til landsins. Fjölmiðlar hafa greint frá því í dag að lögreglu hafi borist fyrirspurn frá Interpol um ferðir stúlkunnar þann 7. jílí síðastliðinn.
Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort hafin verði formleg leit þar sem óskað verði eftir aðstoð björgunarsveita.
Þegar síðast var vitað var Soreda klædd bláum gallabuxum, brúnum fjallgönguskóm og hvítri peysu. Þá hafði hún meðferðis stóran rauðan bakpoka ásamt upprúllaðri ljósgrárri dýnu. Þeir sem hafa upplýsingar um hvar Soreda er niðurkomin, eða hafa séð hana, geta haft samband við lögregluna á Suðurnesjum í síma 444-2200.