Nýjast á Local Suðurnes

Vill byggja gistiheimili á grænu svæði

Óskað hefur verið eftir lóð við Hafnargötu í Grindavík undir gistiheimili á lóð sem er í dag skilgreind á deiliskipulagi sem grænt svæði.

Lóðin sem um ræðir er staðsett á móti Hafnargötu 8 og mætti forsvarsmaður verkefnisins á fund bæjarráðs og gerði grein fyrir hugmyndinni. Í kynningu kom fram að hugmyndir eru um 40 herbergja byggingu á tveimur hæðum.

Bæjarráð fól bæjarstjóra og sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að vinna málið áfram.