Magnaður árangur Söru – Heimsleikarnir í myndum
Árangur Ragnheiðar Söru Sigmundsdóttur á heimsleikunum í crossfit sem fram fóru í Kaliforniu hefur vart farið framhjá nokkrum Suðurnesjamanni en hún lenti sem kunnugt er í þriðja sæti á leikunum eftir að hafa verið í forystu nær alla keppnisdagana.
Myndir segja meira en þúsund orð og hér fyrir neðan má sjá ferðalag Söru í gegnum keppnina.