Nýjast á Local Suðurnes

Varð uppvís að fjölda brota á leiðinni á lögreglustöðina

Ökumaður sem lögreglan á Suðurnesjum mældi á 141 km hraða á Reykjanesbraut í fyrrinótt gaf ekki stefnuljós þegar hann ók milli akreina og virti ekki stöðvunarskyldu þegar hann var á leið á lögreglustöðina, að boði lögreglu. Hann þarf því að greiða samtaks 260 þúsund krónur fyrir hraðakstursbrotið og fleiri brot sem hann varð uppvís að á leiðinni á lögreglustöðina.

Nokkrir ökumenn til viðbótar hafa verið kærðir fyrir hraðakstur á undanförnum dögum.