Nýjast á Local Suðurnes

Sat hjá við atkvæðagreiðslu um fjárhagsáætlun – Stefnir í hækkun fasteignagjalda

Fjárhagsáætlun Reykjanesbæjar var til umræðu, og samþykkt, á bæjarstjórnarfundi í gær, en athygli vakti að bæjarfulltrúi Umbótar, Harpa Sævarsdóttir, sat hjá við atkvæðagreiðsluna þar sem Umbót telur að svigrúm sé til lækkunar á álagsprósentu fasteignagjalda.

Samkvæmt bókun sem Harpa lagði fram og sjá má í heild hér fyrir neðan, stefnir í 4,3% meðaltalshækkun á fasteignagjöldum í Reykjanesbæ.

Harpa Sævarsdóttir, bæjarfulltrúi Umbótar, lagði fram eftirfarandi bókun:

„Ég vil byrja á því að lýsa ánægju minni á fyrirkomulagi fjárhagsætlanagerðar og þakka því starfsfólki Reykjanesbæjar sem hefur komið að þessari vinnu undanfarna mánuði.
Það hefur eflaust verið krefjandi að hafa okkur fulltrúa með í ferlinu en um leið hefur það dýpkað okkar skilning á fjárhagsáætlun í heild sinni og þeim kostnaðarliðum sem liggja á bakvið samanteknar tölur í birtri áætlun.

Að því sögðu teljum við í Umbót að svigrúm sé til lækkunar á álagsprósentu fasteignagjalda í ljósi þess að fasteignamat íbúðarhúsnæðis í bæjarfélaginu mun vera að hækka um 17,5% skv. fasteignamati 2024. Útleggst það sem 4,3% hækkun á fasteignagjöldum að meðaltali.

Slík hækkun er að hafa veruleg áhrif á ráðstöfunartekjur heimila. Í þeim tilvikum sem húseigendur eru einnig lánsettir þá eru ráðstöfunartekjur þeirra heimila nú þegar verulega skertar vegna stýrivaxtahækkana síðastliðinna 18 mánaða. Þess má vænta að þau heimili sem sóttu frystingar á lánakjörum sínum séu mörg hver að fara að lenda í greiðsluvanda á þessu ári. Í ljósi þessa þá mun Umbót sitja hjá við atkvæðagreiðslu vegna fjárhagsáætlunar.
Ég óska þess að þetta verði bókað.“