Nýjast á Local Suðurnes

Þrír Suðurnesjamenn í landsliðshóp karla í körfuknattleik

Craig Pedersen og aðstoðarþjálfarar hans, Arnar Guðjónsson og Finnur Freyr Stefánsson, hafa valið þá 16 leikmenn sem koma til með að mynda loka æfingahóp landsliðs karla í körfuknattleik. Njarðvík og Grindavík eiga þrjá fulltrúa í hópnum, sem tilkynntur var í dag. Fulltrúar Njarðvíkinga eru þeir Logi Gunnarsson og Elvar Már Friðriksson, sem leikur  í Bandaríkjunum um þessar mundir, fulltrúi Grindvíkinga í hópnum er Ólafur Ólafsson.

Framundan eru sex landsleikir í undankeppni EM fyrir EuroBasket 2017 þar sem leikið verður tvíveigis gegn Sviss, Kýpur og Belgíu.

Hópurinn samanstendur af eftirfarandi 16 leikmönnum.

Axel Kárason · Svendborg Rabbits, Danmörk
Brynjar Þór Björnsson · KR
Darri Hilmarsson · KR
Elvar Már Friðriksson · Barry University / Njarðvík
Haukur Helgi Pálsson · Rouen Metropole Basket, Frakkland
Hlynur Bæringsson · Sundsvall Dragons, Svíþjóð
Hörður Axel Vilhjálmsson · Rythmos BC, Grikkland
Jón Arnór Stefánsson · Valencia, Spánn
Kristófer Acox · Furman University / KR
Logi Gunnarsson · Njarðvík
Martin Hermannsson · Étoile de Charleville-Mézéres, Frakkland
Ólafur Ólafsson · St. Clement, Frakkland
Ragnar Ágúst Nathanaelsson · Þór Þorlákshöfn
Sigurður Gunnar Þorsteinsson · Doxa Pefkon, Grikkland
Tryggvi Þór Hlinason · Þór Akureyri
Ægir Þór Steinarsson · San Pablo Inmobiliaria, Spánn