Nýjast á Local Suðurnes

A-10 Warthog vélar Bandaríkjahers í Keflavík – Notaðar í báráttunni við ISIS

Fjórar A-10 Thunderbolt II flugvélar bandaríska hersins hafa nú stutt stopp á Keflavíkurflugvelli, vélar af þessari tegund ganga undir nafninu “Warthog” og hafa undanfarin misseri verið notaðar í baráttunni gegn hryðjuverkasamtökum ISIS.

Vélar af þessari tegund eru mest notaðar í þeim tilgangi að veita hermönnum á jörðu niðri aðstoð í bardaga, en vélarnar geta flogið mjög lágt, þurfa afar stuttar flugbrautir og eru sérstaklega hannaðar og styrktar til að þola miklar árásir.

Ekki fengust upplýsingar um hvert förinni er heitið né hvaðan vélarnar eru að koma.

herflugv2

herflugv1

herflugv4