Nýjast á Local Suðurnes

Íbúar Reykjanesbæjar orðnir 23.000

Samkvæmt Gagnatorgi Reykjanesbæjar, sem finna má hér, eru íbúar Reykjanesbæjar nú orðnir rúmlega 23 þúsund. Þeir skiptast þannig eftir hverfum að tæplega 9900 búa í Keflavík, rúmlega 4800 í Innri Njarðvík, jafnmargir eða 4800 á Ásbrú, 3400 í Ytri Njarðvík og 114 í Höfnum.

Karlkyns íbúar eru 55% og kvenkyns 45%. Alls hafa 5 íbúar náð 100 ára aldri og hlutfall íbúa með erlent ríkisfang er 32%.