Kalka og Sorpa móta sameiginlega framtíðarsýn
Mynd: Blái herinnViðræður Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja (Kölku) og Sorpu eru enn í fullum gangi og var staða málsins rædd og yfirfarin um miðjan janúar. Samþykkt var á fundi viðræðunefndanna að mótuð verði sameiginleg framtíðarsýn sem innifelur nauðsynlegar upplýsingar og að gert verði ítarlegt eigendasamkomulag sem lagt verði fyrir sveitarstjórnir til afgreiðslu.
Á stjórnarfundi Kölku kom fram að þegar ákveðið var að halda áfram viðræðum við Sorpu um mögulega sameiningu félaganna, þá var helsta ástæðan sú að tímabært væri að kanna hvort þetta væri hagkvæmt fyrir sveitarfélögin með framtíðarhorfur og auknar kröfur í úrgangsmálum í huga. Það er mikilvægt fyrir öll sveitarfélög, að horfa til varanlegra lausna í sorpeyðingarmálum og leita bestu aðferða og leiða. Eins og fram hefur komið í kynningum á viðræðum félaganna, er sú aðferðafræði sem lagt hefur verið upp með í sameiningarviðræðunum að skipting eignarhalds verði í takti við íbúafjölda í einstökum sveitarfélögum.
Þá kom einnig fram á fundinum að við mótun framtíðarsýnar má gera ráð fyrir að litið verði til þess meðal annars hvernig samstarfi við önnur sveitarfélög í úrgangsmálum verði háttað.


















