Íbúar taki þátt í endurskoðun á aðalskipulagi Reykjanesbæjar
![adalskipulag RNB](https://i1.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2016/06/adalskipulag-RNB.jpg?resize=620%2C264)
Reykjanesbær hefur nú birt vinnslugögn og drög vegna endurskoðunar á aðalskipulagi Reykjanesbæjar. Vonast er til að flestir kynni sér gögnin og þær breytingar sem talið er nauðsynlegt að ráðast í á næstu árum til að ná settu marki. Nú þegar hafa verið haldnir tveir íbúafundir vegna endurskoðunar skipulags og byggja drögin meðal annars á þeirri vinnu.
Vinnslutillögur að endurskoðuðu aðalskipulagi byggir á nýjum grundvallarforsendur um íbúaþróun og á grunni þeirra er lagðar fram tillögur að breytingum á uppbyggingu íbúða og atvinnustarfsemi. Ákvarðanir taka m.a. til:
• Umfangs uppbygginga
• Stærðar uppbyggingarsvæða
• Blandaðrar landnotkunar
• Nýrrar forgangsröðunar
• Frestunar á uppbyggingarsvæðum