Nýjast á Local Suðurnes

Smáratún meira og minna lokað fyrir umferð í sumar vegna framkvæmda

Myndin tengist fréttinni ekki beint Mynd: Facebook/Ellert Skúlason

Reykjanesbær og HS-veitur munu fara í allsherjar lagnaskipti og endurnýjun Smáratúns á tímabilinu 23. apríl til 27. ágúst nk. Gatan verður meira og minna lokuð fyrir umferð á þessu tímabili , sjá merkingar á mynd. Opið verður við Hátún til þess að bílar geti lagt þar og einnig er bent á bílastæði við kirkjugarð.

Útskipti á fráveitulögnum nær 1 meter inn fyrir lóðamörk þannig að ef húseigandi telur þörf á endurnýjun sinnar heimtaugar að húsi þá getur hann verið í sambandi við Guðlaug H. Sigurjónsson sviðsstjóra umhverfissviðs en kostnaður við endurnýjun innan lóðar fellur á húseiganda.

Framkvæmdir verða sem hér segir:

Gulur (Smáratún nr.8 – Aðalgötu) Lokað 23.04 – 01.06
Rauður (Aðalgata – Smáratún nr.36) Lokað 27.05.- 01.07
Grænn (Smáratún 38 – Vesturgata) Lokað 01.07 – 15.08