Nýjast á Local Suðurnes

Á ferðinni undir áhrifum fjögurra fíkniefna

Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði ökumann sem var undir áhrifum fjögurra mismunandi fíkniefna í gærkvöldi. Ökumaðurinn játaði að vera undir áhrifum fíkniefna en nokkrir aðrir ökumenn voru teknir úr umferð í umdæmi lögreglustjórans á Suðurnesjum vegna fíkniefna. Þar á meðal var maður sem virtist vera með amfetamín í fórum sínum.

Þá var karlmaður handtekinn en hann var eftirlýstur og átti að færa hann fyrir dómara. Talið er að hann hafi verið með fíkniefni meðferðis í dós þegar hann var handtekinn en við handtökuna fleygði hann dósinni frá sér.