Nýjast á Local Suðurnes

Powerade-bikarinn: Sterk vörn og mikil breidd Grindvíkinga gæti gert gæfumuninn

Grindavíkurstúlkur stefna ótrauðar á að bæta þriðja bikarmeistaratitli félagsins í safnið þegar liðið mætir Snæfelli í úrslitaleik Poweradebikarsins í kvennaflokki, í dag klukkan 14. Grindvíkingar hafa tiltil að verja, en töluverðar breytingar hafa verið á liðinu frá því fyrir ári síðan, en liðið hefur meðal annars fengið nýjan þjálfara.

Lið Grindavíkur sem lagði Njarðvíkinga, Hauka og Stjörnuna að velli á leið sinni í úrslitin, hefur verið á mikilli siglingu undanfarin misseri og nokkuð ljóst að ekkert verður gefið eftir í leiknum í dag.

Snæfell telst sterkara liðið á pappírum en það hefur lítið að segja þegar á út á völlinn er komið, því lið Grindavíkur hefur mikla breidd og gríðarlega reynslu. Liðið leikur sterka vörn og það gæti skipt sköpum í leiknum í dag.

Leikur Snæfells og Grindavíkur hefst klukkan 14 og verður sýndur í beinni útsendingu á RÚV.