Nýjast á Local Suðurnes

Gamla myndin: Þekkirðu fólkið?

Gamla myndin er nýjung hér á suðurnes.net, en það er í hugum margra afar áhugavert að skoða gamlar ljósmyndir á þessum stafrænu tímum.

Fyrsta myndin sem við birtum er frá leiksýningunni Láki í ljótri klípu, og er sennilega tekin árið 1956. Þórir Baldursson er með nikkuna, en meiri upplýsingar er ekki að fá á vef Byggðasafns Reykjanesbæjar, hvar myndin er fengin að láni.

Ef þú þekkir fólkið á myndinni þá er um að gera að senda okkur línu í gegnum Facebook-síðu Local Suðurnes, eða með því að nota hafa samband hnappinn efst á síðunni.