Nýjast á Local Suðurnes

Björgun við erfiðar aðstæður – Myndband!

Myndin tengist fréttinni ekki beint - Mynd: Landsbjörg

Björgunarskipið Oddur V. Gíslason kom þýskri skútu til aðstoðar í gærkvöldi nítján sjómílum suður af Grindavík. Hafði skútan misst vélarafl auk þess sem aðalseglið rifnaði, var því skútan stjórnlaus. Fimm manns voru um borð sem að sögn björgunarmanna voru orðnir afar þreyttir eftir baráttuna við hafið.

Björgunarmenn komu taug í bátinn og drógu hann til hafnar í Grindavík. Eins og sjá má á myndbandinu hér fyrir neðan sem Björgunarsveitin Þorbjörn birti í dag voru aðstæður erfiðar.