Nýjast á Local Suðurnes

Opna fyrir umsóknir í uppbyggingarsjóð

Mynd: Facebook- Ozzo

Uppbyggingarsjóður Suðurnesja opnar fyrir umsóknir mánudaginn 3. október og er umsóknarfrestur til miðnættis 10. nóvember.

Tilgangur Uppbyggingarsjóðs Suðurnesja er að styrkja menningar-, atvinnu- og nýsköpunarverkefni á Suðurnesjum. Sótt er um á rafrænni umsóknargátt island.is en frekari upplýsingar má finna á vef Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum og allt um Uppbyggingarsjóð.

Þau sem hyggjast sækja um styrk í sjóðinn eru hvött til að hefja undirbúning tímalega en góð og vönduð umsókn eykur líkur á árangri, segir á vef sjóðsins.

Hér má sjá kennslumyndband sem Uppbyggingarsjóður hefur látið gera fyrir umsækjendur.