Nýjast á Local Suðurnes

Útafakstur á Reykjanesbraut og Sandgerðisvegi – Einn fluttur á HSS

Myndin tengist fréttinni ekki beint

Ökumaður sem var á ferð í bifreið sinni eftir Sandgerðisvegi í fyrrakvöld missti stjórn á henni með þeim afleiðingum að hún fór út af. Vegalengdin frá þeim stað sem bifreiðin fór út af veginum og að henni þar sem hún hafði staðnæmst mældist 67 metrar.  Tveir farþegar voru í bifreiðinni og sluppu þeir og ökumaðurinn án meiðsla.

Í gær var lögreglunni á Suðurnesjum svo tilkynnt um útafakstur á Reykjanesbraut. Bifreið sem var á ferð eftir Reykjanesbrautinni snarhemlaði og ökumaðurinn sem á eftir ók greip til þess ráðs að beygja til hægri til að forðast árekstur. Við það hafnaði bifreið hans utan vegar. Hann kvartaði undan eymslum og var honum ekið á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.

Loks hafði lögregla afskipti af einum ökumanni vegna gruns um ölvunarakstur.