Nýjast á Local Suðurnes

Fjórtán ára spilaði sinn fyrsta mótsleik fyrir meistaraflokk

Freysteinn Ingi Guðnason sem uppalinn er í yngri flokkum Njarðvíkur varð í gær yngsti leikmaður í sögu Njarðvíkur til að leika meistaraflokksleik þegar hann kom inn á sem varamaður í 6-0 stórsigri Njarðvíkur á Ægi. Freysteinn Ingi er 14 ára, 11 mánaða og 11 daga gamall.

Óskar Örn Hauksson, leikjahæsti leikmaður úrvalsdeildar karla í knattspyrnu, hefur átt metið frá 5. september 1999.

Hér fyrir neðan er listi yfir yngstu 10 leikmenn í sögu Njarðvíkur til þess að spila mótsleik með meistaraflokki:

1 Freysteinn Ingi Guðnason (2007) – 14 ára, 11 mán, 11 daga.
2 Óskar Örn Hauksson (1984) – 15 ára, 14 daga.
3 Ari Már Andrésson (1996) – 15 ára, 10 mán, 11 daga.
4 Kristinn Örn Agnarsson (1983) – 16 ára, 2 mán, 22 daga.
5 Helgi Már Vilbergsson (1993) – 16 ára, 4 mán, 12 daga.
6 Gunnar Örn Einarsson (1983) – 16 ára, 6 mán, 4 daga.
7 Frans Elvarsson (1990) – 16 ára, 8 mán.
8 Kristinn Björnsson (1987) – 16 ára, 8 mán.
9 Ingvar Jónsson (1989) – 16 ára, 8 mán, 10 daga.
10 Andri Fannar Freysson (1992) – 16 ára, 10 mán, 29 daga.

Mynd: Kd. Njarðvíkur