Safnmenn söfnuðust saman í Reykjanesbæ – Myndir!
![safnmenn cover](https://i0.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2016/09/safnmenn-cover.jpg?resize=620%2C264)
Farskóli safnmanna sem haldinn er árlega víðsvegar um landið, var að þessu sinni haldinn í Hljómahöll í Reykjanesbæ. Áhersluþættir eru mismunandi en ávallt málefni sem eru í brennidepli í rekstri safnanna og safnamálum hverju sinni.
Áhersluþáttur skólans í ár var Söfn í sviptivindum samtímans. Margir fróðlegir fyrirlestrar voru í boði fyrir safnmenn að þessu sinni, en auk góðrar blöndu af íslenskum fyrirlesurum voru tveir erlendir fyrirlesarar héldu erindi í Farskólanum að þessu sinni, annars vegar Thomas Michael Walle frá menningarsögusafni Noregs og hinsvegar Jacob Buhl Jensen stjórnandi danskra safnamála.