Nýjast á Local Suðurnes

Hlutur Reykjaneshafnar af sérstöku strandveiðigjaldi ansi rýr

Ljóst er að hlutur Reykjaneshafnar í sérstöku strandveiðigjaldi til hafna sem Fiskistofa innheimtir kemur ekki til með að hafa mikil jákvæð áhrif á rekstur hafnarinnar.  Gjaldið var innheimt standveiðitímabilið maí til ágúst síðastliðinn og var hlutur Reykjaneshafnar þegar allt var uppgert heilar 498 krónur.

Stjórn Reykjaneshafnar ræddi málið á fundi sínum í vikunni og fagnar viðkomandi tekjustofni sem í mörgum tilfellum styður við rekstur hafnarsjóða sem það hljóta þó hlutur Reykjaneshafnar hafi verið undir væntingum.