Birta stjórnsýsluúttekt vegna Kísilvers
Bæjarráð Reykjanesbæjar lét framkvæma stjórnsýsluúttekt vegna framkvæmda við kísilverksmiðju United Silicon í Helguvík.
Lúðvík Arnar Steinarsson lögmaður var ráðinn til að gera úttektina sem nú liggur fyrir og var lögð fram á bæjarstjórnarfundi, þriðjudaginn 16. júní. Megin niðurstaða skýrslunnar er að annmarkar hafi verið við útgáfu byggingarleyfa sem ekki voru í samræmi við gildandi deiliskipulag. Hins vegar sé ekkert að finna sem bendi til þess að annarleg sjónarmið hafi ráðið ferð í samskiptum stjórnenda sveitarfélagsins við fyrirtækið.
Skýrsluna má nálgast hér.