Nýjast á Local Suðurnes

Upplýsingafundur í Reykjanesbæ

Ljósmynd: Reykjanesbær.is / OZZO

Upplýsingafundur á vegum Reykjanesbæjar um afhendingaröryggi vatns og raforku á Suðurnesjum verður haldinn í Stapa fimmtudaginn 29. febrúar kl. 19.30. íbúar á svæðinu eru hvattir til að mæta en fundinum sem verður jafnframt streymt á Facebook síðu Reykjanesbæjar.

Dagskrá:

  • Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, formaður bæjarráðs Reykjanesbæjar
    • Opnunarerindi
  • Ari Trausti Guðmundsson, jarðfræðingur
    • Jarðfræði Reykjanesskagans
  • Kristinn Harðarson framkvæmdastjóri framleiðslu hjá HS Orku
    • Afhendingaöryggi hitaveitu og raforku til dreifiveitu – viðbrögð og forvarnir
  • Páll Erland forstjóri HS Veitna
    • Afhendingaöryggi vatns og raforku til íbúa og fyrirtækja – viðbrögð og forvarnir
  • Pallborð – spurningar úr sal og streymi
    • Frummælendur sitja í pallborði

Fundarstjóri verður Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri í Reykjanesbæ