Nýjast á Local Suðurnes

Hetjur hafsins munda myndavélarnar og stofna Facebookhóp – Sjáðu geggjaðar myndir!

Sjómenn eru oft á tíðum í aðstöðu til þess að festa afar flott andartök á filmu eins og glögglega má sjá í nýstofnuðum fésbókarhópi hvar sjómenn (og aðrir) eru hvattir til þess að birta flottar myndir af sjó og landi.

Hópurinn var stofnaður fyrir nokkrum dögum og telja meðlimir hans nú nokkur hundruð manns og óhætt að segja að flottar myndir og myndbönd berist á færibandi. Fésbókarhópinn, Icelandic nature and sea pictures, má finna hér.