Nýjast á Local Suðurnes

Framlengja yfirdrátt vegna slæmrar lausafjárstöðu

Aukin fjárþörf vegna fjárfestinga gerir það að verkum að tímabundin þörf á lausafé er að skapast hjá Reykjaneshöfn.

Þetta kom fram í máli hafnarstjóra, sem fór yfir stöðu fjármála á síðasta stjórnarfundi. Í máli hans kom einnig fram að þörfin fyrir lausafé muni að öllum líkindum jafnast út er líður á rekstrarárið og þarf að gera ráðstafanir vegna þess.

Eftirfarandi var lagt fram á fundinum: Stjórn Reykjaneshafnar samþykkir að óska eftir því við viðskiptabanka hafnarinnar að núverandi yfirdráttarheimild verði framlengd til 31. desember 2022.