Nýjast á Local Suðurnes

Fæðingar ekki mögulegar á HSS

Ljósmæðravakt heilbrigðisstofnunar Suðurnesja segja fæðingar ekki mögulegar hjá þeim þangað til hiti komi á Reykjanesið á ný.

Stofnunin mun áfram sinna mæðravernd og bráðaþjónustu eins og vanalega. Þá verði fólk til staðar að meta hvort konur séu byrjaðar í fæðingu eða ekki.

„Kæru verðandi foreldrar. Því miður getum við ekki boðið upp á að konur fæði á HSS þar til hita hefur verið komið á Reykjanesið aftur. Við munum áfram sinna mæðravernd og bráðaþjónustu eins og vant er. Við munum einnig vera á staðnum til að meta hvort konur eru byrjaðar í fæðingu eða ekki og leiðbeina með val á fæðingarstað ef þess gerist þörf. Minnum á að konur þurfa alltaf að hringja á undan sér ef þær óska eftir skoðun.“ segir í tilkynningu, en þar er einnig bent á símanúmerið 422-0542 vanti fólki frekari upplýsingar.